Þetta er ekki blogg... þetta er list!

bíó er best

16.9.06

mér finnst rigningin go-óð

Þið tókuð kannski eftir geðsjúku rigningunni sem var í fyrradag, ég allavega sé ekki hvernig hún gæti hafa farið framhjá ykkur (þau sem eru í Rvk að minnsta kosti hehehe ;p). Það var svona tropical hitabeltis regnskógar DEMBA sem stóð yfir í alveg hátt í 20mín í senn...

Mín var oftar sem áður að læra sér og fékk smá sjoppukláða... nema hvað að það var judgement day rigning úti og ekki hægt að hætta sér út án þess að vera VEL vatnsheldur ;p ...en eins og fyrir kraftaverk stytti upp og það var jafnvel farið að glitta í smá sólartetur í gegnum skýin - GLÆSILEGT! Mín út í sjoppu!

Mín gírar sig náttla upp í úlpu og húfu svona djöst in keis og skokkar af stað... sekúndubroti eftir að ég loka útidyrahurðinni er eins og skrúfað frá krana... og sjoppukláðinn var nú orðinn það alvarlegur að ég gat nú ekki farið að hætta við enda er það nú bara fyrir aumingja og kisulórur. Ég dreg að mér andann og skoppa niður tröppurnar og BAM! BIM! BÚM! BAM!

Aðrir eins hlussudropar hver á eftir öðrum dundu á mér og áður en ég komst út á götu var ég orðin blautari heldur en ef ég hefði farið í sturtu í fötunum! ;D ...en þar sem ég er nú svona "allt eða ekkert" manneskja þá finnst mér flestir hlutir í hófi ekkert spennó og flokkast rigning þar undir... en þegar hún er orðin svona geðsjúk er þetta bara hin mesta skemmtun og ég hálf óskaði þess að ég væri aftur orðin fimm ára í glansandi regngalla að hoppa í pollum =D.

...það sem ég klikkaði hinsvegar á var að ég var í gallabuxum, sem þýðir það að heimleiðin tók svona þrefalt lengri tíma hahaha ;p (þið skiljið þetta ef þið hafið einhvern tímann reynt að labba í blautum gallabuxum!)

Og allir syngja með: Mér finnst rigningin GO-ÓÐ trallallallallallaaa vo-oó



2 Kaseiru?

  • At 17 september, 2006 10:09, Anonymous Nafnlaus said…

    ég er svo sammála þér.. mér finnst fátt skemmtilegra en að fara út í helli dembu en þá sleppi ég nú gallabuxunum því það er ekki fyrir hvern sem er að labba í blautum gallabuxum ;)
    en þar sem ég er fyrir austan missti ég af þessari massívu rigningu (við höfum nú samt fengið smá af því)

    hlakka til að hitta þig (sem verður fljótlega) :D

     
  • At 18 september, 2006 01:29, Anonymous Nafnlaus said…

    Mér finnst rigningin líka GO-ÓÐ trallallallallallaaa vo-oó

    Skil ekkert í því þegar fólk er að bölva rigningunni :/ Mér finnst svo þægilegt eitthvað þegar rignir úti. En allt er nú samt gott í hófi ;)

    Pé.ess flottar myndir :)
    Kv. Gugga

     

Skrifa ummæli

<< Home