Þetta er ekki blogg... þetta er list!

bíó er best

4.10.06

little kitty

Hvað er málið með stelpur og kettlinga?!?

Ég er byrjuð í fyrsta áfanganum mínum í líffræði (mánuði eftir á, hversu mikið ég er það?!?) sem ég er svona að spekúlera að taka líka BS í og þá eru hlutföll stelpna og stráka GJÖRSAMLEGA öfug við það sem ég er vön í tölvunarfræðinni... ég er vön að vera basically eina stelpan í tímanum og að kennarinn segi reglulega "Jæja strákar..." og þar sem ég er nú algjör strákastelpa inn við beinið þá líkar mér þetta alveg fantavel =D

En í líffræðinni þá eru einstaka strákar á stangli og svo bara STELPUR, STELPUR OG FLEIRI STELPUR!

Og ég verð að segja það að ég hef aldrei á ævinni verið inni í stofu með jafn mörgum fartölvuskjámyndum af kettlingum...utrolight! ;p

Ég verð einnig að segja það að mér finnst nú ólíkt þægilegra að vera inni í stofu fullri af strákum heldur en stelpum... strákar eru svo chillaðir og fínir, þeir eru ekkert að fetta fingur út í smáatriði... aftur á móti verður andrúmsloftið svo vírað þegar það eru nánast bara stelpur því þær eru svo dómharðar og smámunasamar (upp til hópa, og sér í lagi í hóp... ég er ekki að segja að þið sem kvenkynseinstaklingar séu það endilega...) og það er svona hærri standard sem maður þarf að uppfylla til að vera meðtekinn og þar sem ég er nú HRESSILEGA skrýtin á köflum þá er það alveg að vinna með mér ef strákar eru í meirihluta ;p

Þetta B L O G G var í boði Guggu bloggklappstýru ;)

4 Kaseiru?

  • At 04 október, 2006 20:14, Anonymous Nafnlaus said…

    Takk fyrir, takk fyrir...

    En vá hvað ég skil þig með þetta stelpu og strákahópa... ;) Alveg eins og talað út úr mínu hjarta!

    Kær kveðja Gugga Bloggklappstýra ;)

     
  • At 04 október, 2006 22:19, Anonymous Nafnlaus said…

    ertu bara í dýrafræði eða ertu líka í e-u öðru líffræðidóti??

    kv
    Ragga

     
  • At 04 október, 2006 23:43, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég er bara í dýrafræði þessa önn... og ég var að senda e-mail að biðja um leyfi til að fá líffræðina metna sem val :S ...og ef allt gengur according to plan (sem það gerir nú sjaldan hahah ;p) þá fer ég í frumulíffræði og örverufræði eftir jól =D

     
  • At 05 október, 2006 22:12, Anonymous Nafnlaus said…

    omg magga þúst þú ert alveg tóóótally down with the kittens you know? :D FÓ SHIZZLE! (gelgja meets the streets)

     

Skrifa ummæli

<< Home