Þetta er ekki blogg... þetta er list!

bíó er best

29.5.07

Besta, snilldarlegasta viðreynslan!



Ég var á djamminu um daginn að dansa í hressleika mínum, þegar ég finn eitthvað á öxlinni á mér í örskotsstund (var í hlýrabol) og UM LEIÐ og ég heyri þetta yndislega hljóð fatta ég að þetta eru skeggbroddar úr æðislegum 5 o'clock shadow. Ég sný mér við um hæl og þar stendur gaur með svona "how r U doin' "-svip, en sagði ekki neitt. Ég sver það, hefði hann verið AÐEINS álitlegri, bara ponsupínulítið, þá hefði hann samt ekki verið neitt ofur álitlegur - en þessi viðreynsla bætti SVO mörgum stigum við hann að ég hefði alveg fallið KYLLIflöt!



Strákar, svona á að gera þetta!

Ekki einhverja ööömurlega frasa
eða ósmekklega utanídansa...




Og þegar ég leit á gaurinn með mjög svo kurteisislegum "nei takk"-svip þá dróg hann sig samstundis í hlé. Það er LYKILLINN að góðri viðreynslu að það sé auðvelt að segja pent nei, helst án orða, án þess að þurfa að öskra það framan í gaurinn milljón sinnum, áður en maður stingur af til að losna.

4 Kaseiru?

  • At 29 maí, 2007 20:50, Anonymous Nafnlaus said…

    Haha flott blogg ;)

    Já ef að allir væru nú svona "þægilegir" það er að segja fara þegar maður segir nei! haha...

    kv. úr Garðinum
    Gugga

     
  • At 29 maí, 2007 22:28, Anonymous Nafnlaus said…

    Ah, þetta útskýrir ýmislegt.

    "Back to the drawing board, boys!"

     
  • At 31 maí, 2007 00:23, Blogger Vilhelm said…

    Já, það eru ekki allir búnir að fara á Seduce & Destroy námskeið með T.J. Mackey.

    http://youtube.com/watch?v=7MoP5y15-x4

     
  • At 08 ágúst, 2007 12:44, Anonymous Nafnlaus said…

    Jæja góða mín, þetta gengur ekki lengur! Ég fer bráðum að segja upp áskriftinni að síðunni þinni.... nei ég segji það nú kanski ekki alveg, en Stella komdu með eitt blogg fyrir mig!!!!!!!!!!!!

     

Skrifa ummæli

<< Home