Þetta er ekki blogg... þetta er list!

bíó er best

16.2.08

17.mars


Ég get ekki beeeðið eftir 17.mars því þá byrjar Eurovision æðið! =D

Og ég er officially búin að segja af mér sem Íslendingur for the time being - í íslensku undankeppninni eru búin að vera þrjú frábær lög til að senda í keppnina og þau hafa ÖLL verið kosin út!

Það var eitt lag sem bara ER eurovision, through and through, og ég trúi því ekki enn að það hafi verið kosið út - eurovision gleðin bara heltekur mann í hvert skipti sem það er spilað og það er ekki HÆGT að vera með skeifu í meira en 2 sekúndur ;p

I wont be home tonight

Wiggle Wiggle Song er náttúrulega bara klassi, ekki eins mikil eurovision gleði en hressilega töff (á eurovision mælikvarða) og ég hélt með því undir það síðasta...

Wiggle Wiggle Song

Svo var þriðja lagið kannski minna eurovision en mjög svona hugljúft og vel sungið lag - sem er meira en hægt er að segja um ANSI mörg lög þessarar keppni!

Johnny

Öll hin lögin hafa verið vond, illa sungin eða afskaplega óeurovisionleg - nú eða allt þetta til samans!

Og ég svo innilega trúi því ekki að Hey Hey Hey Ho Ho Ho eigi eftir að vinna þessa keppni því mér finnst þetta svona Sylvía Nótt Nr. 2 ...að senda Gilzenegger með sína vaxtarræktaraula og gellu sem gæti ekki sungið þó líf hennar lægi við!!!

Það sem er æðislegast við eurovision er að þetta er eina skiptið sem ÖLL Evrópulöndin taka þátt saman í sátt og samlyndi í vinarlegri baráttu... og við gerum ekkert nema að hrækja á keppnina aftur og aftur...

Það er sko ekkert "við" lengur, ég segi af mér sem Íslendingur og vona að Ísland detti úr keppni í undankeppninni!

2 Kaseiru?

  • At 20 febrúar, 2008 12:14, Anonymous Nafnlaus said…

    í fyrsta lagi þá er þetta ekki vinaleg keppni í sátt og samlyndi. Þetta er svo rigged. Við hérna norðanmegin eigum ekki séns því að þau þarna suðaustan eru svo samrímd að þau íhuga ekki einu sinni að kjósa neina aðra. Ég hef ekki heyrt öll lögin frá íslandi en mér leyst eiginlega ekkert á þau :P þoli ekki þegar það er svona ein söngkona sem stendur og er að syngja rólega. Á að vera heartworming en þú þarft að vera með Whitney Hjúston eða Christina Aquilera rödd til að púlla það off og þessar íslensku beiglur bara eiga ekki séns :) ég persónulega tek ekki þátt í þessarri vitleysu en var samt að spá að halda smá júróvísjón gleði fyrir vini mína. Ef við komumst áfram það er að segja.

     
  • At 20 febrúar, 2008 12:16, Anonymous Nafnlaus said…

    hey eg var að sjá að haffi haff lagið er þarna :D það er lagið sem ég kaus!! jee, hef ekki heyrt hin lögin

     

Skrifa ummæli

<< Home