Þetta er ekki blogg... þetta er list!

bíó er best

21.10.06

sot ath hte

Sumt fólk þjáist af lesblindu en ég fer að hallast á það að ég sé haldin pikkblindu!

Titillinn er lítið dæmi úr glósunum mínum sem ég er nú í óða önn að skapa og átti þetta upphaflega að vera "so that the", þannig að ef það er ekki pikkblinda þá veit ég ekki hvað! ;p

...ég er sér í lagi slæm með the = hte og svo stundum snúast heilu orðin nánast við hahaha en yfirleitt alltaf sömu eða nánast sömu stafir og eru í upprunalega orðinu nema bara engan veginn í réttri röð *dúddúrúú*

Ég er með þá kenningu að ég pikki hraðar með annarri hendinni en hinni og þá er hún alltaf komin fram úr, klárar alla sína stafi og hin bætir sínum við á eftir, lafmóð... greyið, híhí ;)

1 Kaseiru?

  • At 22 október, 2006 13:26, Anonymous Nafnlaus said…

    hahahaha :D já ég var einmitt að stroka út "hHhHhHhHhhh" Svona þegar maður hittir ekki a og hittar á caps lock... love that! Svo verður alltaf sovc því þegar ég átta mig á villunni þá panikka ég og þá kemur c :D frábært!

     

Skrifa ummæli

<< Home