Þetta er ekki blogg... þetta er list!

bíó er best

31.1.08

John Wayne



Í þroskunarfræði í dag lærði ég um mýs sem labba eins og John Wayne.

You gotta love university ;p


sjá frá mín 3:40...

19.1.08

It's alive! :o

Halló, halló, halló!

Komu ársins 2008 og 25 ára afmælisins var fagnað ákaft með CRAZY veikindum sem eru svona að segja sitt síðasta rétt núna. Mikið gaman, mikið grín!

Hrakfallabálkurinn ég
Þeir sem þekkja mig vel vita að ég á það dáldið til að meiða mig, oft og mörgum sinnum á dag jafnvel... sjaldnast neitt alvarlegt þó - kúlur á kollinn, marblettir margir og litfagrir, brenni mig og annað skemmtilegt =D
Í gær ákvað ég að poppa... þegar ég kom upp var mamma að ljúka við það að poppa fyrir sig og fékk ég pottinn á eftir henni og tek um hann eins og ekkert sé. En nei, pottur heitur! Svo fingurgómarnir mínir urðu nett steiktir á tveimur puttum og núna daginn eftir líður mér eins og ég sé med kertavax á þeim... þeir líta fínt út sko en þegar ég pikka þá finn ég ekki fyrir tökkunum - áhugavert ;p

Kostur: nú get ég framið glæp með tveimur puttum án þess að hafa hanska og CSI liðið getur ekki nappað mig með fingrafara-maskínunni sinni, haHA!

Gerið eins og Dr. Phil segir: Get excited about your life!