Þetta er ekki blogg... þetta er list!

bíó er best

29.5.07

Besta, snilldarlegasta viðreynslan!



Ég var á djamminu um daginn að dansa í hressleika mínum, þegar ég finn eitthvað á öxlinni á mér í örskotsstund (var í hlýrabol) og UM LEIÐ og ég heyri þetta yndislega hljóð fatta ég að þetta eru skeggbroddar úr æðislegum 5 o'clock shadow. Ég sný mér við um hæl og þar stendur gaur með svona "how r U doin' "-svip, en sagði ekki neitt. Ég sver það, hefði hann verið AÐEINS álitlegri, bara ponsupínulítið, þá hefði hann samt ekki verið neitt ofur álitlegur - en þessi viðreynsla bætti SVO mörgum stigum við hann að ég hefði alveg fallið KYLLIflöt!



Strákar, svona á að gera þetta!

Ekki einhverja ööömurlega frasa
eða ósmekklega utanídansa...




Og þegar ég leit á gaurinn með mjög svo kurteisislegum "nei takk"-svip þá dróg hann sig samstundis í hlé. Það er LYKILLINN að góðri viðreynslu að það sé auðvelt að segja pent nei, helst án orða, án þess að þurfa að öskra það framan í gaurinn milljón sinnum, áður en maður stingur af til að losna.