23.12.06
8.12.06
Náttpúki
Ég er svo mikill náttpúki að annað hefur vart sést!
Nú er prófatörnin að skarta sínu fínasta og ég er gjörsamlega búin að snú sólarhringnum við, algjörlega án þess að ætla það. Lúllutíminn minn byrjar núna í fyrsta lagi um 6-7, enda líka kannski skiljanlegt því að LANGleiðinlegasti tími dagsins er á milli 7-10 þ.e. á morgnanna þegar maður er búinn að sofa um nóttina, ef maður hefur vakað alla nóttina þá getur þetta verið ansi hressilegur tími =D
3.12.06
Super-jól
Það eru 21 dagur í jólafrí! ;p
Já, jólafríið mitt byrjar 24. desember hahaha... þannig að þetta verða óundirbúnustu jól sem uppi hafa verið! =D ...allir, hvernig hljómar heimagerð snjókallsföndurfígúra úr klósettpappír í jólagjöf?!?! ;p
Shit, já, svo fer ég í jólaköttinn :S
Æh, ég nota bara aikido-þjálfun mína til að rúlla mér í burtu með stæl ;D
...og svo er ENNÞÁ meiri hátíð framundan, ÞREFALT Á ÞRIÐJA sem er árleg hefð síðan í fyrra og ég verð að segja ein sú flottasta hefð sem ég hef heyrt um híhí =D
Ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svooo til :)
En ef einhver lumar á UBERsniðugum jólagjafahugmyndum sem hægt er að redda á UBERstuttum tíma með UBERlitlu veseni, þá eru eyrun mín UBERopin og rúmlega það ;)