Þetta er ekki blogg... þetta er list!

bíó er best

25.4.07

Hitað upp fyrir Eurovision!

Bara 14 dagar/16dagar og 23klt í undnakeppnina/final-ið!!!

Ég er nú búin að vera á fullu að hita upp síðustu vikuna enda fólk orðið hálf hrætt við mig því ég er alltaf í svo góðu skapi og brosi ALLAN HRINGINN! =D

Ég ELSKA Eurovision!
Hallærisleiki er vanmetinn nú til dags, það þarf allt að vera svo hip&kúl - newsflash: það er ekki hip&kúl að vera hip&kúl ;)

En þeir sem þora, endilega come join me í endalausu gleðinni!!
-->
eurovision

14.4.07

ruglumþvugl

Verðlaunadulmálsgátan!
Sá sem þýtt getur þennan dulkóðaða texta hlýtur vegleg verðlaun :O


Gátan

brt'æsimom gutot æsidm Rddstst h+syi rt dbstyit nærlæsid y+iddðrmmo. yoæ js,omhki!

ath: vísbendingar munu koma með tíð og tíma ef allir eru svo innilega ljóshærðir að geta ekki leyst þessa gátu ;)



p.s. komið nýtt google! ;D

2.4.07

Pöntun afgreidd

Það var pantað blogg, svo hér er blogg!

Það stóð ekkert í pöntuninni að það þyrfti að vera skemmtilegt tíhí ;D

En undirrituð er nú í óða önn að lesa og lesa og lesa og já hey, lesa =D

...því að prófin eru handan við hornið og það er komið "á morgun", en ég er búin að vera sá lati og segja "á morgun" nokkuð lengi *úps!*

...þannig að mín á eftir að lesa rúmar 2000 bls af líffræði mombó jombói og að SJÁLFSÖGÐU þarf að muna hvert einasta smáatriði á hverri og einni af þessum blaðsíðum... gott :).


Ég er nú svo löt að ég nenni nú ekki að kippa mér mikið upp við þetta, krossa bara fingurnar og vonast eftir kraftaverki ;D ...og les og les svona á meðan ég er að bíða hehehe ;p


En ef ykkur leiðist þá er þetta uppáhalds atriðið mitt þessa dagana:
*ýttu á mig!*


p.s. ég vil líka vekja athygli á nýjum viðbætum á síðunni, en það er kominn nýr hliðardálkur: GOOGLE ;D ...þar mun ég læða inn þeim ýmsu fróðleiksmolum sem google er svo góður að hvísla að mér og tengjast EKKERT því sem ég er að leita að...

Ahh, the wonders of Google!
It tells you everything you never knew you always wanted to know ;)
...AND everything you never knew you didn´t want nor need to know ;p.